Snjór og ávextir
Sorbet á ríka sögu og er hægt að rekja til upphafs okkar tímatals. Sagt er að sorbet hafi sprottið frá Persíu, en þar var snjór tekinn úr fjöllum og geymdur í sérstökum ísgeymslum sem kölluðust "Yakhchal".
Snjórinn var nýttur til að kæla drykki og kölluðust þeir drykkir "Sherbet". Þegar Drykkurinn barst til Rómar var hann kallaður "sorbetto" og ´siðar til Frakklands þar sem við fáum orðið sorbet.
Ítalía og Frakkland
Með Rómaveldinu kom ísinn Sorbet þar sem keisarinn Neró lét flytja snjó niður frá fjöllunum og lét búa til Sorbet með ávöxtum og hunangi. Þetta var hinsvegar máltíð sem aðeins þeir auðugu fengu að njóta í Rómaveldi.
Eftir Fall Rómar komu ítalskir innflytjendur með Sorbet uppskriftir til Frakklands þar sem franska auðstéttin tók fljótt á móti honum og nefndi hann Sorbet. Þá voru gerð hundraðir bragða sem Frakkar nutu á milli máltíða.
Nútíma Sorbet
Með framþróun ferðamáta hefur sorbet breiðst út um allan heim og er víðþekktur fyrir lúxus bragð og gæði.
Sorbet er nýttur í fínum veitingastöðum sem bragðhreinsir og gæðaís á milli máltíða.
Þar koma við inn, við viljum að Íslendingar sem heild fái að smakka þessa uppfinngu heima hjá sér. Þessi ís er of góður til þess að Ísland hafi hann ekki í Verslunum
Við Viljum Þína Hugmynd!